Símanúmer
512-4600

Vefgreining

Google analytics – tölfræði um þitt vefsvæði

Hugbúnaðarrisinn Google býður uppá viðamikið og öflugt vefgreiningartól notendum að kostnaðarlausu. Endor hefur yfirgripsmikla þekkingu á Google Analytics og vefgreiningu og hvernig má nýta þær upplýsingar til úrbóta á vefsvæðum. Með réttri uppsetningu og ráðgjöf getur þú náð fram miklum framförum á vefsvæði þínu.

Hvað er vefgreining?

Vefgreining miðar að því að fylgjast með og rannsaka hegðun notenda á tilteknu vefsvæði, þ.e. söfnun og greining gagna til að betrumbæta vefsvæði út frá þeim markmiðum sem hafa verið sett fyrir vefsvæði.

Hvernig fer hún fram?

Vefmæling og greining er samofið ferli sem sífellt endurtekur sig og miðar að því að skila niðurstöðum sem nota má til að betrumbæta vefsvæði og auka ánægju og upplifun notenda.

Vefgreiningarferlið skiptist í 4 hluta sem eru ítraðir í sífellu

  1. Greining og mat á vefsvæði
  2. Gagnasöfnun og úrvinnsla
  3. Tillögur að úrbótum
  4. Innleiða breytingar

Með því að fylgja eftir þessum fjórum einföldu atriðum má tryggja hámarks nýtingu á vefsvæðinu og framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini ykkar í gegnum vefinn.

Þú getur pantað vefgreiningu hjá okkur með því að hafa samband í síma 512-4600 eða með því að senda póst á endor@endor.is.  Vefgreiningin er framkvæmd á mánaðartímabili og kostar kr. 15.000 án vsk (kr. 18.825 m/vsk).

Endor Vefþjónustan sf sign up form


Duis aute irure dolor in reprehenderit in voluptate velit esse cillum dolore eu fugiat nulla pariatur excepteur sint occaecat cupidatat non

Endor Vefþjónustan sflogin form